Styrktarsjóður BSRB

 

 

Afgreiðsla styrkja, umsóknir og gögn

Allir styrkir miðast við almanaksárið og kvittanir/aðgerðardagsetningar mega aldrei vera eldri en 12 mánaða gamlar þegar að sótt er um hjá sjóðnum.
Umsókn um styrki skal gerð á til þess gerðum eyðublöðum sem liggja frammi á skrifstofu Styrktarsjóðs og hjá aðildarfélögum hans og henni skilað til sjóðsins ásamt nauðsynlegum vottorðum. Einnig er hægt að nálgast umsóknareyðublöð á heimasíðu sjóðsins á slóðinni styrktarsjodur.bsrb.is Styrkir úr sjóðnum greiðast mánaðarlega. Umsókn skal hafa borist skrifstofu sjóðsins eða hafa verið póstlögð áður en 12 mánuðir eru liðnir frá því að réttur til greiðslu stofnaðist. Umsókn skal skilað inn fyrir 15. hvers mánaðar. Að jafnaði er þá greitt út síðasta dag hvers mánaðar eða næsta virka dag á eftir. Með umsóknum skulu fylgja öll gögn sem sjóðstjórn telur nauðsynleg hverju sinni.
Stjórn sjóðsins áskilur sér allan rétt til að breyta reglunum með 3ja mánaða fyrirvara eftir því sem þörf krefur, hvort sem er til þrengingar á reglunum eða útvíkkunar. Fé sjóðsins verður látið ráða því á hverjum tíma.

Gott að vita

Launaseðlar:
Sjóðurinn sendir út yfirlit yfir allar samþykktar styrkveitingar einu sinni á ári.  Sjóðurinn sendir út launaseðla vegna dagpeninga mánaðarlega.  Hann sendir ekki út launaseðla vegna annarra málaflokka nema sé eftir því sé óskað sérstaklega. 
Sjóðurinn svarar þeim umsækjendum sem sóttu um hjá sjóðnum en var hafnað um styrkveitingu.

Styrkir