Tannlæknakostnaður
Styrkurinn nemur 50 % af kostnaði sem fer umfram 50.000 kr. á hverju 24 mánaða tímabili, þó að hámarki 150.000 kr. Réttur til styrkja stofnast ekki aftur fyrr en 12 mánuðir eru liðnir frá því að 24 mánaða tímabilinu lýkur.
Hægt er að sækja um um styrkinn oftar en einu sinni á hverju 24 mánaða tímabili.
Kvittanir/ aðgerðardagsetningar mega aldrei vera eldri en 12 mánaða gamlar.
Nánar um endurvakinn rétt:
Aðgerðardagar mega aldrei vera eldri en 12 mánaða gamlar á þeim tíma sem sótt er um hjá sjóðnum. 24 mánaða tímabilið hefst í þeim mánuði sem tannlæknastyrkurinn er samþykktur. Réttur til styrkja stofnast ekki aftur fyrr en 12 mánuðir eru liðnir frá því að 24 mánaða tímabilinu lýkur.
Staðgreiðsla skatta er ekki tekin inn í þessi dæmi.
Dæmi um tannlæknastyrk:
A) Sjóðfélagi sækir um styrk í janúar 2005. Hámarksstfeyrkur (150.000 kr.). er samþykktur þann 31. janúar 2005.
Sjóðfélagi getur þá sótt um tannlæknastyrk í fyrsta lagi í febrúar 2008 og þá mega aðgerðardagar ekki vera eldri en 12 mánaða gamlir.
B) Sjóðfélagi sækir um styrk í janúar 2005. 100.000 kr. styrkur er samþykktur þann 31. janúar 2005. Sjóðfélagi sækir aftur um hjá sjóðnum og fær 50.000 kr. tannlæknastyrk samþykktan þann 31. janúar 2006.
Sjóðfélagi getur þá sótt um tannlæknastyrk í fyrsta lagi í febrúar 2008 og þá mega aðgerðardagar ekki vera eldri en 12 mánaða gamlir.
C) Sjóðfélagi sækir um tannlæknastyrk í janúar 2006. Hann fær 100.000 kr. styrk þann 31. janúar 2006. Sjóðfélagi sækir aftur um tannlæknastyrk á árinu 2007 og fær samþykktan 50.000 kr. styrk þann 31.janúar 2007.
Sjóðfélagi getur þá sótt um tannlæknastyrk í fyrsta lagi í febrúar 2009 og þá mega aðgerðardagar ekki vera eldri en 12 mánaða gamlir.
D) Sjóðfélagi sækir um tannlæknastyrk í janúar 2006. Hann fær 50.000 kr. styrk þann 31.janúar 2006 og svo aftur 50.000 kr. styrk þann 31. janúar 2007.
Umsækjandi nær ekki hámarksstyrk (150.000 kr.) á 24 mánaða tímabilinu. Hann þarf engu að síður að bíða til febrúar 2009 eftir að rétturinn vaknar að nýju.
Dæmi: (100.000 kr. - 50.000 kr.) / 2 = 25.000 kr. styrkur.
Gott að vita:
Hægt er að hringja og fá nánari upplýsingar um styrk vegna tannlæknakostnað í síma 525-8381.Styrkir